Snag-golf í Vættaskóla

snag2-46562-800-600-80Í unglingadeild Vættaskóla er SNAG golf ein af mörgum valgreinum sem í boði eru.  SNAG er skammstöfun og stendur fyrir Starting New at Golf. Þetta er kennslukerfi sem henta einstaklingum á öllum aldri. SNAG er öðruvísi nálgun á undirstöðuatriðum golfsins og hefur verið í stöðugri þróun í 10 ár. En það er stutt síðan að íþróttin kom til Íslands og er óðum að festa sig í sessi.

 

Kennslan fer þannig fram að undirstaðan og tækniatriði eru tekin fyrir og lýkur hverju stigi með prófi þar sem nemendur þurfa að ná vissum stigafjölda til að fara á næsta stig. Einnig eru hannaðar golfbrautir og þar spila nemendur annaðhvort sem einstaklingar eða í liðum. Reynt er að tengja sem mest við golfíþróttina sjálfa.  SNAG er hægt að kenna bæði utan- og innanhús.

Vættaskóli er einn af fjórum skólum á landinu sem býður upp á þetta skemmtilega sport og kom Magnús Birgisson golfkennari og kenndi nemendum  (og kennara) í fyrstu tveimur tímunum.  Aðallega á þetta að vera skemmtilegt en eins og golfinu sjálfu þá þurfa iðkendur að vera agaðir.

Vættaskóli hefur fengið lánuð kennslutæki  í byrjun en nú þarf nú að verða sér út um sínar eigin tól og tæki og vonandi tekst það með góðra manna og kvenna.